Kvíholt 4, 220 Hafnarfjörður
114.000.000 Kr.
Hæð/ Hæð í tvíbýlishúsi
5 herb.
206 m2
114.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1967
Brunabótamat
81.550.000
Fasteignamat
96.000.000

Kvíholt 4, stór hæð ásamt auka íbúð og bílskúr. Íbúðin er skráð 206,5 fm að stærð samkvæmt fmr, með stórri sólríkri verönd á bílskúrsþaki hússins. Einstök staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, leikskóli og skóli skammt frá.

Nánari lýsing:
Forstofa, gengið er upp fallegan stiga, á stigapallinum er síðan útgengt út á verönd, gangur/hol, fallegt nýlegt eldhús með góðu vinnuplássi, innfelld lýsing að hluta og rúmgóður borðkrókur.
Alrýmið er bjart með stórum gluggum og fallegu útsýni, alrýmið saman stendur af borðstofu og stofu og útgengt er út á svalir úr stofunni, herbergisgangur með þremur barnaherbergjum og stóru hjónaherbergi.
Þvottaherbergi, flísalagt baðherbergi með nýlegri innréttingu, upphengdu salerni og sturtu, bílskúrinn er rúmgóður 26,4 fm að stærð, smíðuð úti geymsla sem nýtist vel fyrir t.d dekk o.þ.h.

Auka íbúðin:
Gengið er inn hægra megin við húsið, forstofa, eldhús, borðkrókur, gangur, flísalagt baðherbergi með sturtu og fínni innréttingu, stórt svefnherbergi og aðstaða fyrir þvottavél.

Eigendur eignarinnar hafa fengið og samþykkt tilboð í að láta sprunguviðgera húsið, hefjast þær framkvæmdir í apríl og munu núverandi eigendur greiða fyrir þær framkvæmdir.

Samkvæmt eigendum:
Skipt var um alla glugga á efri hæðinni fyrir u.þ.b. 4 árum, eldhúsið tekið í gegn fyrir u.þ.b. 6-7 árum, ofnakerfið tekið í gegn í aðal íbúðinni, skipt um ofna og ný rafmagnstafla sett upp. Falleg eign sem býður upp á mikla möguleika og vert er að skoða.

Nánari upplýsingar veitir: 
Stefán Rafn Sigurmannsson s.655-7000 eða [email protected]

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.