Opið hús: 20. mars 2023 kl. 17:30 til 18:00.Opið hús mánudaginn 20. mars milli kl. 17:30 & 18:00 við Brekkuás 9 í Hafnarfirði - Verið velkomin!
128,1 fm endaíbúð með glæsilegu útsýni við Brekkuás 9 í Hafnarfirði. Íbúðin er á 2. hæð frá götu en 1. hæð frá garði með sérinngang. Sér stæði í bílageymslu fylgir íbúðinni.
Eignin skiptist þannig að íbúðin sjálf er 119,0 fm og sér geymsla í kjallara 9,1 fm, samtals 128,1 fm skv. Fasteignaskrá.
SÉRINNGANGUR - LYFTA - SÉR STÆÐI Í BÍLAGEYMSLU - ÚTSÝNI - YFIRBYGGÐÐAR SVALIRNánari lýsing: Sérinngangur. Forstofa með skáp. Eldhús og stofa í björtu alrými með glæsilegu útsýni, útg. á rúmgóðar yfirbyggðar svalir með opnanlegu gleri. Eldhúsið er með hvítri og viðarlitaðri innréttingu, kvartzsteinsborðplötum, spanhelluborði með háf yfir, vask og uppþvottavél í eyju, tveimur ofnum í vinnuhæð. Þrjú svefnherbergi eru í íbúðinni, skápar í öllum. Mögulegt er að bæta við fjórða herberginu með því að fórna litlum hluta af stofunni. Baðherbergi með innréttingu, baðkari og sturtu, handklæðaofn, veggsalerni. Opið er inn í þvottahús innaf baðherberginu.
Gólfefni er harðparket og flísar.
Sér geymsla í kjallara og snyrtileg sameign með hjóla- og vagnageymslu. Sér stæði í bílageymslu.
Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu og falleg útivistarsvæði.
Nánari upplýsingar veitir Aron Freyr Eiríksson löggiltur fasteignasali í s. 772-7376 / [email protected]
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is