109,2 fm frístundahús við Guðjónsgötu 10 í Úthlíð, Bláskógabyggð.
Eignin skiptist í forstofu - Stofu og eldhús í björtu alrými með útg. á verönd - Þrjú svefnherbergi - Baðherbergi með sturtu - Geymslu/inntaksrými.
Góður sólpallur með heitum potti. Lóðin er gróin kjarri og bílaplan malarborið.
Úthlíðar sumarhúsasvæðið er með síma öryggishliðum og er þetta hús innan þess svæðis, hitaveita er á svæðinu.
Öflug ferðaþjónusta er einnig rekin í Úthlíð en þar er t.d 9 holu golfvöllur, hestaleiga og í Réttinni er sundlaug með heitum pottum, veitingastaður o.fl.
Stutt er á 3 golfvelli, útivistar og göngusvæði, Geysir er í 15 mínútna akstursfjarlægð og ca. 20 mín akstur er á Flúðir og Laugarvatn.
Nánari upplýsingar veitir Aron Freyr Eiríksson löggiltur fasteignasali í s. 772-7376 / aron@as.is
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is