Skrifstofuhúsnæði á 2. og 3. hæð við Köllunarklettsveg 4 í Reykjavík.
Eignin er alls 614,9 fm sem skiptist þannig að 1. hæð (stigagangur og geymsla) er 16,2 fm, 2. hæð er 462,3 fm og 3. hæð er 136,4 fm skv. Þjóðskrá Íslands.
Smelltu hér til að fá söluyfirlitið sent strax
Nánari lýsing: Eignin skiptist í 15 skrifstofur, kaffistofu með hvítri innréttingu, ofn og helluborði. Tvö baðherbergi. Eitt herbergi með sturtuaðstöðu. Þvottahús. Þrjár geymslur.
Gólfefni allra skrifstofa er parket. Gólfefni á öðrum hlutum húsnæðisins er ýmist parket, dúkur eða epoxy.
Kaupanda er kunnugt um að seljandi eignaðist hina seldu eign í skuldaskilum og að seljandi getur því ekki uppfyllt upplýsingaskyldu sína. Seljandi bendir því kaupanda á að gæta sérstakrar árvekni við skoðun á eigninni og að kaupandi leiti sér aðstoðar sérfræðinga til að meta ástand eignarinnar. Seljandi veitir kaupanda allan nauðsynlegan aðgang til að meta og skoða hina seldu eign. Kaupverð tekur mið af ástandi eignarinnar sem selst í því ástandi sem hún var í við nákvæma skoðun kaupanda og hann sættir sig við að öllu leyti.
Nánari upplýsingar veitir Kristófer Fannar Guðmundsson lögfræðingur og löggiltur fasteignasali í s. 661-4066 og Aron Freyr Eiríksson löggiltur fasteignasali í s. 772-7376 / aron@as.is
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is