Lýsing
STÓRGLÆSILEGAR ÍBÚÐIR FYRIR 50 ÁRA OG ELDRI Í LYFTUFJÖLBÝLI VIÐ SKIPALÓN
4 - 8 Á HVALEYRARHOLTI Í HAFNARFIRÐI.
Um er að ræða 40 2ja, 3ja og 4ra herbergja íbúðir og fylgja þeim öllum stæði í upphitaðri bílageymslu. Húsið er sérlega vel staðsett með óhindruðu útsýni yfir Hafnarfjörð, hafnarsvæðið, að Esju og víðar.
Íbúðirnar skilast fullbúnar án gólfefna þó verða baðherbergi og þvottahús flísalögð. Lóð verður fullfrágengin samkvæmt lóðarteikningu. - Arinn og 2 stæði í bílgeymslu með stærstu íbúðunum. - Tvennar svalir á stærri íbúðum bæði út úr eldhúsi og stofu. Frábært útsýni úr nánast öllum íbúðum. - Tvö baðherbergi í stærri íbúðum þ.a. annað inn af hjónaherbergi. - Innréttingar í hæsta gæðaflokki frá Agli Árnasyni. - Heimilistæki frá Ronnig Uppþvottavél og Ískápur fylgja. - Hreinlætistæki frá Tengi. - Flísar frá Álfaborg. - Granít á borðum og sólbekkjum. - Stórar stofur. - Innangengt úr bílgeymslu í 3 lyftur. - Þvottastæði í bílgeymslu. - Hefðbundin sameign ásamt afnotarétt á 55 fermetra samkomusal. - Golfvöllur í göngufæri.
Íbúðirnar eru tilbúnar til afhendingar við kaupsamning.
Verð:
- 2ja herb. 70 - 75 fm kr. 21,5 - 22.5 millj.
- 3ja herb. 95 - 122 fm kr. 23,8 - 34,3 millj
- 4ra herb. 128 - 167 fm kr. 30,0 - 44,0 millj.