Lýsing
Sérlega falleg 6 íbúða raðhús við Drekavelli nr. 11, í Hafnarfirði.
Húsið afhendist fullbúið að utan, lóð tyrfð og bílastæði hellulögð. Að innan verður húsið afhennt rúmlega tilbúið til innréttinga, gólfhiti kominn og búið að draga í rafmagn.
Hérna er um einstakt tækifæri að ræða fyrir þig að eingast fallegt sérbýli því húsið er þannig hannað að auðvelt er að klára það án mikils viðbótar kostnaðar.
Húsið er á þremur hæðum með opnu bílskýli. Íbúðirnar skiptast þannig að á fyrstu hæð er bílskýli og inn af því geymsla og inntaksrými, anddyri og eitt svefnherbergi. Af gangi er hurð út í garð. Á annari hæð er eldhús, stofa, borðstofa og salerni. Svalir eru beggja vegna húss út frá borðstofu og stofu hins vegar. Á efri hæð eru tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Svalir eru út frá þvottahúsi að norðanverðu og út frá svefnherbergi að sunnanverðu.
Seljandi hefur greitt öll heimtaugagjöld en kaupendur greiða skipulagsgjald.