Lýsing
Glæsileg sýningaríbúð hafið samband við sölumenn Ás
Glæsilegar íbúðir við Norðurbakka 1-3 í Hafnarfirði. Íbúðunum fylgir stæði í bílageymslu.
Íbúðirnar afhendast fullbúinar án gólfefna nema á baðherbergi og þvottahúsi verða flísar á gólfi.
Sérlega vandaðar innréttingar frá InnX, skúffurog hurðar með mjúklæsingu, hægt að velja milli Bilma og Masca innréttinga og ná þær allar upp í loft o.fl., Miele tæki frá Eirvík, Granít borðplata frá Granítsmiðjunni og baðtæki frá Ísleifi Jónssyni. Glæsilegar stórar sturtur verða í íbúðunum. Endaíbúðir með góðum svölum og miðjuíbúðir með tvennum svölum.
Stutt er í góð útivistarsvæði og miðbæinn þar sem eru bæði verslanir, veitingastaðir og öll þjónusta.
Sameiginlegt garðsvæði verður milli húsa nr. 1 & 3 með skemmtilegri lýsingu og vatnsspegli langs með húsunum.
Húsið er uppsteypt á hefðbundinn hátt klætt álplötum og flísakerfi. Gluggar eru ál/tré með litaðri álklæðningu á úthlið.
Hérna er um að ræða sérlega vandaðar íbúðir í fallegu húsi við miðbæ Hafnarfjarðar.
Byggingaraðili er ATAFL.
Fáið allar frekari uppl. hjá sölumönnum Ás fasteignasölu.