Lýsing
Glæsilegar 2-4ra herbergja íbúðir MEÐ MÖGULEIKA Á 90% LÁNUM ásamt stæði í bílageymslu á frábærum stað miðsvæðis í Hafnarfirði. Íbúðirnar afhendast fullbúinar en án gólfefna nema baðherbergi verður flísalagt í hólf og gólf, þvottahús verður með flísum á gólfi og vinnuborði með skolvaski. Innréttingar eru frá HTH, vönduð stáltæki og uppþvottavél frá AEG fylgja. Bað- og blöndunartæki frá Sturta.is og fylgir horn sturtuklefi með nudd og gufubaði öllum íbúðum. Lit mynddyrasími er í öllum íbúðum. Milliveggir í öllum íbúðum eru hlaðnir úr léttstein. Húsið að utan, lóð og bílastæði skilast fullfrágengið. Tvær lyftur eru í húsinu. Húsið er fimm hæðir og er fimmta hæðin talsvert inndregin. Um það bil helmingur íbúðanna er með sérinngangi inn af svölum. Geymsla og þvottahús er í öllum íbúðum þó eiga nokkrar íbúðir geymslu í kjallara. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í kjallara.
Möguleiki á 90% fjármögnun.