Lýsing
Um er að ræða hús með 4 íbúðum, tvær á neðri hæð og tvær á tveim hæðum á efrihæð í fjórbýli. Eignin afhendist fullbúin að utan og lóð frágengin samkvæmt teikningu en án leiktækja. En að innan afhendist eigin tilbúin til innréttingar samkvæmt skilalýsingu seljanda. Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi, geymslu, þvottahús og fjölskyldurými.
Skilalýsing: Húsið er byggt samkvæmt teikningum Sigurðar Þorvarðarsonar BFÍ. Húsið er staðsteypt á hefðbundin hátt úr járnbentri steinsteypu. Til að lámarka viðhald hússins er húsið klætt og einangrað að utan með báruáli. Sjáanlegir steyptir fletir eru pússaðir og málaðir.
4 íbúðir eru í húsinu allar með sér inngang, 8 bílastæði eru fyrir framan húsið.
Lóð verður fullfrágengin samkvæmt teikningu, leiktæki fylgja ekki. Bílastæði verða malbikuð og merkt. Allar stéttar verða hellulagðar. Svalir í séreignahluta íbúða 1 hæðar (verandir) verða grófjafnaðar.
Inngangssvalir, stigar úti og stigi milli 2. og 3. hæðar skilast ílögð múr. Sameignarrými eru fullfrágengin, máluð. Gólf svala 2. hæðar eru staðsteypt og skilast ílögð múr. Handrið eru úr áli fullfrágengin. Svalir í séreignahluta íbúða 1 hæðar (verandir) eru grófjöfnuð. Gluggar og hurðarkarmar eru ísteyptir, timbur/ál frá BYKO. Gluggar, karmar og hurðir eru fullmálaðir. Opnanleg fög eru með riðfríum brautarlömum og tveggja punkta læsingum. Gluggar eru glerjaðir með trélistum og lituðum álundirlistum. Gler er tvöfalt K-verksmiðjugler með fimm ára verksmiðjuábyrgð. Lóð verður fullfrágengin samkvæmt teikningu. Lóðin verður tyrfð, stéttar hellulagðar. Bílastæði verða malbikuð og afmörkuð með málningu. Kantsteinn verður steyptur þar sem malbik endar ekki við hellulögn. Leiktæki fylgja ekki. Steyptir veggir og steypt loft eru slípuð, sandspörtluð og grunnmáluð, ein umferð. Léttir veggir eru gipsveggir, tilbúnir til spörtlunar. 3. hæð skilast í því ástandi sem hún er í nú þegar. Gólf 1. hæðar eru staðsteypt og slípuð. Gólf 2. hæðar skilast ílögð og pússuð. Gólf 3. hæðar skilast í núverandi ástandi. Hita og neysluvatnslagnir eru samkvæmt teikningu hönnuðar, Sigurðar Þorleifssonar. Gólfhiti er á 1. og 2. hæð og skilast tengdur, hitalögn á 3. hæð skilast þannig að lagnir eru blindaðar við gólf 3. hæðar. (Ekki stjórnbúnaður fyrir hita). Fráveitulagnir innanhúss verða fullgerðar og frágengnar frá niðurföllum og þrifatækjum en þar verða leiðsluendar með lokum. Neysluvatnslagnir verða tengdar við stofninntak og skilast í tengistút í veggjum fyrir neysluvatn og tilbúnar fyrir blöndunartæki og tengikassa. Raflagnir eru samkvæmt teikningu hönnuðar, Helga Kr. Eiríkssonar. Heimtaug rafmagns verður tengd og frágengin. Pípur fyrir raf- og boðlagnir milli taflna og tengidósa verða fullgerðar. Aðaltafla verður fullbúin. Greinitöflur verða tilbúnar fyrir vinnulýsingu. Eitt vinnuljós verður tengt í hverju herbergi. Loftræstilagnir verða komnar skv. teikningu. (Sjálftrekkjandi)