Seljandi:
Ás fasteignasala
Byggjandi:
Íslenskir aðalverktakar

Norðurbakki 15 & 17

220 Hafnarfirði
Tegund:Fjölbýli
Verð frá:29,6 mkr.
Stærð frá:108,3 m²
Herbergi frá:3

Lýsing

Glæsilegar 3ja & 4ra herb. íbúðir ásamt stæði í bílageymslu í nýjum lyftuhúsum á frábærum stað í hinu nýja bryggjuhverfi á Norðurbakkanum í Hafnarfirði.

NORÐURBAKKI 15 og 17 eru fjögurra hæða lyftuhús og tvær íbúðir á hæð. Innangengt er í bílageymsluhús með 106 stæðum en þau eru í sameiginlegu bílageymsluhúsi Norðurbakka 15, 17, 19 og 21. Eitt eða tvö sér bílastæði fylgja öllum íbúðum. Steyptir útveggir eru einangraðir og klæddir að utan með álklæðningu og harðviðarklæðningu að hluta. Íbúðunum er skilað fullbúnum með parketi á gólfum, flísalögðum baðherbergjum og flísalögðum þvottahúsgólfum. Gólfhiti í öllum íbúðum. Lofthæð íbúða er um 2,7 metrar. Extra hæð á hurðum. Allir gluggar niður í gólf sem gefur mikla og skemmtilega byrtu. Tvennar svalir á flestum íbúðum.
Sameign og lóð eru fullfrágengin með snjóbræddum bílageymslurampa og hellulögðum göngustígum. Á þaki bílageymsluhúss er sameiginlegur garður með leiksvæði, garðbekkjum og púttvelli. Gólfplötur eru einangraðar til aukinnar hljóðeinangrunar. Sér þvottahús er í hverri íbúð, auk þess eru rúmgóðar geymslur í kjallara fyrir hverja íbúð.

Hafðu sambandi við Ás fasteignasölu til þess að fá að skoða og nálgast teikningar og allar frekari upplýsingar.

BYGGINGARAÐILI: ÍSLENSKIR AÐALVERKTAKAR HF.