Lýsing
Fallegt raðhús í suðurhlíðum Arnarneshæðarinnar sem skilast fullbúið að utan með hellulagðri heimkeyrslu, lóð tyrfð og tilbúið til innréttinga að innan allt eftir skilalýsingu seljanda.
Húsin standa við
Byggakur 1
Byggakur 3
Byggakur 5
Byggakur 7
Byggakur 9
Neðri hæð skiptist í bílskúr, anddyri og snyrtingu götumegin. Til norðvesturs eru síðan eldhús, stofa og borðstofa með útgang út á verönd og garð.
Efri hæð skiptist í 3-4 svefnherbergi baðherbergi sem er einnig innangengt í frá hjónaherbergi, þvottaherbergi, geymslu og sjónavarpshol. Svalir eru út frá hjónaherbergi.
Allir veggir verða grunnaðir. Lagt fyrir gólfhita og hann klár á stýribúnaðar. Rafmagn ídregið.
Ál/tré gluggar. Snjóbræðsla í heimkeyrslu og við inngang.
Hérna er um að ræða sérlega skemmtileg hús á góðum stað í hverfinu. Þetta er dæmi sem þú ættir ekki að láta hjá líða að skoða.
Allar frekari upplýsingar veita sölumenn Ás fasteignasölu, Fjarðargötu 17 í Hafnarfirði, sími 520-2600.