Lýsing
Fallegt endaraðhús í byggingu miðsvæðis í Vogum í Vatnleysuströnd. Húsið er alls 133,1 fm og þar af er bílskúr 25 fm. Góð lofthæð er í húsinu sem gerir möguleika á millilofti bæði í íbúðinni og í bílskúr. Samkvæmt teikningum er innra skipulag þannig, forstofa, tvö herbergi, hol, geymsla, þvottahús, stofa, borðstofa með útg. á út á lóð, eldhús og bílskúr.
Nánari skilalýsing: Húsið er steinsteypt. Botnplata. Þak og burðarvirki er samkvæmt burða og arkitekta teikningu. Húsinu verður skilað kvarsað/steinað að utan. Þak er með alúzinkuðu bárujárni. Þakkantur fullfrágenginn með kúptri klæðningu, rennur tengdar í niðurföll, frárennslislagnir frágengnar. Gluggakarmar eru úr furu að innan en ál að utan. Gler er tvöfalt k gler. Bílskúrshurð er frá MEST- raynor hurð. Að innan er húsið afhent húsið rúmlega fokhelt þ.e. húsið einangrað með rakavörn. Útveggir múrhúðarir. Raflagnir komnar í steypta útveggi og innveggi.
Sorptunnugeymsla/skýli fylgir með. Lóð er skilað grófjafnaðri en sökklar steyptir fyrir skjólveggjum í garðinum.
Seljandi sér um að greiða byggingaleyfisgjöld, gatnagerðargjöld, tengigjöld fyrir rafmagn, neysluvatn og hita.
Kaupandi sér um að borga skipulagsgjald þegar það verður innheimt.