Lýsing
Falleg raðhús við
Kvistavelli 34
Kvistavelli 36
Kvistavelli 38
Kvistavelli 40
Húsin skilast fullbúin að utan, fokheld að innan og grófjöfnuð lóð. Frágangur húss að innan: Að innan skilast húsin fokheld auk þess sem búið verður að steypa lögn fyrir gólfhitakerfi í gólfplötu neðri hæðar. Á efri hæð er gert ráð fyrir ofnakerfi.
Frágangur húss að utan: Húsið verður steinsteipt á hefðbundin hátt. Útveggir hússins og svalir verða steinaðar með marmarasalla en fletir á milli glugga verða filtaðir. Ísteyptir gluggakarmar og karmar svalahurða verða úr furu, en opnanleg fög og útihurðir úr organpine. Allar útihurðir verða með 3ja punkta læsingu. Gluggar verða fullmálaðir að utan en grunnaðir að innan. Bílskúrshurð er úr málmi í ljósum lit. Svalahandrið verða steypt í 80 cm hæð og handlistar úr galvaniseruðum járnrörum sem verða 35 cm há sett ofaná. þak verður hefðbundið timburþak, fullfrágengið og klætt með báruformuðu þakjárni. Allar innsteyptar raflagnir verða komnar í samkvæmt teikningu hönnuðar. Stæði fyrir halogenljós verða steypt í loft neðri hæða samkvæmt teikningu hönnuðar.
Allar frekari upplýsingar fást hjá sölumönnum Ás fasteignasölu ásamt litprentuðum upplýsingabækling.