Seljandi:
Ás fasteignasala
Byggjandi:
Vér ehf.

Austurhóp 14

240 Grindavík
Tegund:Einbýli
Verð frá:24,9 mkr.
Stærð frá:209 m²
Herbergi frá:5

Lýsing

Mjög skemmtilegt og fallegt 173,1 fm EINBÝLI á einni hæð, m/innbyggðum BÍLSKÚR 35,9 fm, samtals 209,0 fm. LÝSING: Forstofa, þvottahús, eldhús/alrými, stofu, fjögur rúmgóð svefnherbergi, fataherbergi inn af hjónaherbergi, baðherbergi, gestasalerni, þvottahús, bílskúr og geymslu inn af bílskúr, innangengt er í bílskúrinn frá forstofu. Húsið er byggt úr timbri, með timburálgluggum, fög og hurðar út Mahogny,
full glerjað, stór bílskúrshurð út stáli. Þaki klætt með lituðu báruáli, þakrennur og niðurföll úr plasti.
Húsið skilast fullbúið að utan, lárétt báruálklæðning í bland við slétt ál, en rúmlega fokhelt að innan. Húsið verður fulleinangrað, rakasperra og lagnagrind komin í loft og á útveggi. Gólfplata með ísteyptum gólfhita, neysluvatnslagnir verða úr plasti. Hitaveitu og rafmagnsinntök verða komin. Kominn verður hiti á húsið en án stýringa, vinnurafmagn komið við töflu. Einnig fylgir með einfalt gifs í loft og tvöfalst gifs í útveggi og milliveggi ásamt blikkstoðum í miliveggi. Allar teikningar fylgja með en ef breyta þarf teikningum greiðir kaupandi það sér. Teikningar liggja nú á borði byggingarfulltrúa til samþykktar.
AFHENDING 6 MÁN. FRÁ KAUPSAMNING.