FASTEIGNIR.IS ER ORÐINN LANG STÆRSTI VEFURINN
Í dag fækkaði um mörg þúsund þeim eignum sem eru inn á fasteignaleitarvef mbl. þar sem þorri fasteingasala neitaði að greiða mbl. fyrir það að skaffa þeim efni á netið.
Í framhaldinu er fasteignaleitarvefurinn http://www.fasteignir.is orðinn lang stærsti fasteignaleitarvefur landsins, en þar inni eru allar fasteignasölu á landinu með sínar eignir.
Inni á þessum stóra vef eru ýmsar nýjungar og fleiri væntanlegar. Má þar nefna að nú má einnig finna þær leigu eignir sem fasteignasalar hafa til umráða.