Velta á fasteignamarkaði eykst um 31,2% á milli mánaða

Alls var 425 kaupsamningum þinglýst við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í febrúar og er það 31,2% aukning frá janúarmánuði er 324 kaupsamningum var þinglýst. Alls var veltan 15,1 milljarður króna í febrúar sem er 35% aukning milli mánaða er veltan var 11,1 milljarður króna.

Meðalupphæð á hvern kaupsamning var 35,4 milljónir króna í febrúar. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 9,5 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 2,7 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 2,8 milljörðum króna.

Ef hins vegar eru bornir saman febrúarmánuður í ár og í fyrra kemur í ljós að kaupsamningum hefur fækkað á höfuðborgarsvæðinu um 39,9% og veltan minnkað um  24,8%. Í febrúar 2007 var þinglýst 707 kaupsamningum, velta var 20 milljarðar króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 28,3 milljónir króna, samkvæmt upplýsingum frá Fasteignamati ríkisins.