Veruleg veltuaukning á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu
Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í september 2007 var 924 sem er 90,1% aukning frá sama mánuði árið á undan. Í síðasta mánuði nam velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu 31 milljarði króna sem er 128,7% aukning frá september 2006.
Í september 2007 nam meðalupphæð á hvern kaupsamning 33,5 milljónum króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 19,1 milljarði, viðskipti með eignir í sérbýli 6,6 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 5,3 milljörðum króna.
Í september 2006 var þinglýst 486 kaupsamningum, velta var 13,5 milljarðar króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 27,8 milljónir króna.
Þegar september 2007 er borinn saman við ágúst 2007 fjölgar kaupsamningum um 6,9% og velta eykst um 22,3%. Í ágúst 2007 var þinglýst 864 kaupsamningum, velta var 25,3 milljarðar króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 29,3 milljónir króna, samkvæmt upplýsingum frá Fasteignamati ríkisins.