Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í ágúst 2007

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í ágúst 2007 var 864. Heildarvelta nam 25,3 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 29,3 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 17,1 milljarði, viðskipti með eignir í sérbýli 6,2 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 2,0 milljörðum króna.

Þegar ágúst 2007 er borinn saman við júlí 2007 fækkar kaupsamningum um 13,5% og velta minnkar um 20,4%. Í júlí 2007 var þinglýst 999 kaupsamningum, velta var 31,8 milljarðar króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 27,8 milljónir króna.

Þegar ágúst 2007 er borinn saman við ágúst 2006 fjölgar kaupsamningum um 108,2% og velta eykst um 110,2%. Í ágúst 2006 var þinglýst 415 kaupsamningum, velta var 12,0 milljarðar króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 29,0 milljónir króna.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.